Rosalegt fyrir og eftir hjá Ninu sem sér um Stylizimo bloggið. Hún er með rosalega flottan stíl og gerði nýlega svakalegar breytingar á húsi sem hún var að flytja inní. Held að myndirnar segja allt sem segja þarf.
0 Comments
Mér finnst mjóar svartar línur á hvítum bakgrunni vera rosalega stílhreint, þetta rúðustrika look. Maður þarf samt að passa að þetta minni mann ekki of mikið á stærðfræðitímana í denn.
Svona rúður passa fullkomlega inn í eldhúsið eða svefnherbergið þar sem þær gefa svo hreint yfirbragð. Já sælir hvað mánuður líður fljótt... sérstaklega þegar það er nóg að gera.
Vildi deila með ykkur myndir af flottum eldhúsum sem eru búin að vera að safnast saman á pinterest hjá mér. Er mikið fyrir þetta hvíta útlit með blöndu af svörtu og náttúrulegum við. Svo er líka mikilvægt að poppa uppá eldhúsið með smá lit og þá sérstaklega með því að nota plöntur (kryddplöntur, blóm,..). Hope you like :) Ég rakst á þessi veggspjöld frá Studio Esinam fyrir skömmu og fannst þau frekar flott. Þau sýna arkitektúr mismunandi bygginga frá ýmsum borgum í heiminum. Studio Esinam velja oftast gamlar og nýjar byggingar og segja þannig sögu staðarins í gegnum arkitektúr. Gaman er að sjá hversu ítarleg teikningarnar eru og hve mikið er lagt í þær.
Þau senda um allan heim en eru staðsett í Svíþjóð. Verðið er annað hvort 650 eða 950 sek.kr. fer eftir hve mikið upplag er á hverri mynd. Hvaða borg heillar þig? Sjálf finnst mér Berlín og París klassísk. Datt einhvernveginn inn á Urban Outfitters síðuna í dag og vá hvað mig langar í sumar aftur þegar ég sé allar þessa hlýrabola og kjóla myndir. Varð svaka hrifin af þessu pikka-bú-grafísku looki á síðunni þeirra. Er svo flott að hafa eitthvað svona einfalt og stílhreint sem að gerir heildar útlitið alveg einstakt.
Topparnir hjá þeim er hægt að klæða upp og niður við hvaða tilefni sem er við skyrtu, bol, hlýrabol... Fékk þessa nýju ól á Daniel Wellington úrið mitt fyrir stuttu. Þessi tegund heitir Classic Sheffield en ég var einmitt að blogga um það um daginn. |
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|